Þjónusta

T Plús er sérhæft fyrirtæki á sviði bakvinnsluþjónustu. Verkefni félagsins byggja á fjórum stoðum og eru þau að mestu byggð á þjónustu við fjármálafyrirtæki, fagfjárfesta, lífeyrissjóði og vörsluaðila séreignasparnaðar.


Starfsfólk T Plús býr yfir margra ára starfsreynslu á fjármálamarkaði og hefur markað sér þá stefnu að veita bestu þjónustu sem völ er á fyrir sanngjarnt verð. 


Vörslu- og uppgjörsþjónusta

T Plús býður einstaklingum, fyrirtækjum og fagfjárfestum upp á fjölmarga þjónustuþætti allt frá vörslu verðbréfa til alhliða bakvinnsluþjónustu sem felur í sér m.a. daglegan rekstur á verðbréfakerfum, uppgjöri og vörsluþjónustu, fyrirtækjaaðgerðir, afstemmingar, skýrsluskil, yfirlit og prófanir á upplýsingakerfum.

Dæmi um þjónustuþætti:

  • Uppgjör fjármálagerninga
  • Varsla eigna
  • Afstemming eigna
  • Umsjón og frágangur fyrirtækjaaðgerða
  • Innheimta skuldabréfa og víxla
  • Móttaka og afhending eigna
  • Veðsetningar
  • Veðsetningar fyrir þriðja aðila
  • Vísitölu-  og gengisskráningar
  • Regluleg viðskiptayfirlit
  • Skráningar stofnupplýsinga


Sjóðaþjónusta

T Plús býður upp á alhliða sjóðaþjónustu fyrir rekstrarfélög verðbréfasjóða. Fyrirtækið hefur yfir að ráða upplýsingatæknikerfum sem gerir viðskiptavinum kleift að lækka rekstrarkostnað og ná fram hagræðingu í rekstri. Sjóðaþjónusta felur m.a. í sér vörslu og uppgjör verðbréfa, útreikning gengis og ávöxtunar, eftirliti með fjárfestingarstefnum sjóða, bókhald og skýrsluskil til opinberra aðila.

Dæmi um þjónustuþætti:

  • Reikningshald
  • Gengisútreikningar
  • Ávöxtunarútreikningar sjóða og viðmið þeirra
  • Frávikagreining
  • Útgáfa hlutdeildarskírteina
  • Afstemmingar
  • Eftirlit með fjárfestingarstefnum sjóða
  • Skýrsluskil
  • Útreikningur og uppgjör umsýsluþóknana


Lánaþjónusta

Eigendur lánasafna geta útvistað innheimtu þeirra til T Plús. Félagið tekur á móti þinglýstum lánasamningum og sér um innheimtu þeirra út líftímann eða fram að lögheimtu. Öll lán eru vistuð í lánakerfi í eigu T Plús. Viðskiptavinir sem útvista lánasöfnum til T Plús geta verið lífeyrissjóðir og fjármálafyrirtæki.

Dæmi um þjónustuþætti:

  • Skilgreining lánasniðmáta
  • Skilgreining lánaflokka
  • Móttaka þinglýstra lánasamninga
  • Skráning lánasamninga í lánakerfi
  • Útgreiðsla lána
  • Afstemmingar
  • Lánayfirlit
  • Innheimta
  • Milliinnheimta
  • Skilmálabreytingar
  • Samskipti við RSK