Gildi, Markmið og Stefnur

Framtíðarsýn


T Plús ætlar sér að veita örugga og skjóta bakvinnsluþjónustu sem viðskiptavinir geta mælt með, fjármálageirinn horfir upp til og starfsmenn eru stoltir af.


Gildi


  • Fagmennska: Við sinnum störfum okkar af fagmennsku og áreiðanleika sem skilar sér í meiri gæðum og ánægju til viðskiptavina fyrir þá þjónustu sem við veitum
  • Frumkvæði: Við sýnum frumkvæði í okkar störfum. Erum skapandi og nýtum þekkingu okkar og reynslu til að ná ennþá lengra. Frumkvæði okkar skilar sér í betri árangri fyrirtækisins sem í framhaldinu skilar sér til viðskiptavina
  • Liðsheild: Við vinnum saman sem ein öflug liðsheild, vinnum með jákvæðu hugarfari og drifkrafti sem skilar sér í betri þjónustu og samskiptum við viðskiptavini. Með góðri samvinnu nær hver og einn enn betri árangri


Starfsmannastefna


  • Við ætlum okkur að vera góður og eftirsóttur vinnustaður
  • Við erum fjölskylduvænt fyrirtæki og bjóðum upp á sveigjanlegan vinnutíma
  • Við stuðlum að jafnvægi milli vinnu og einkalífs og kappkostum að samræma starfs-  og fjölskylduábyrgð
  • Við störfum í vinnuumhverfi sem er opið fyrir breytingum og nýjum hugmyndum
  • Við leggjum áherslu á að upplýsingastreymi sé gott og að stefna og markmið fyrirtækisins séu starfsfólki ljós
  • Við stuðlum að góðum starfsanda og leggjum áherslu á virðingu fyrir hvert öðru og viðskiptavinum okkar
  • Við komum fram við aðra eins og við ætlumst til að aðrir komi fram við okkur
  • Við erum ábyrgðarfull og hagsýn, berum hag viðskiptavinar fyrir brjósti og gætum að heiðarleika. Við förum með fjármuni fyrirtækisins með ábyrgum hætti
  • Við leggjum allan okkar metnað í að standa okkur vel í öllu því sem við gerum
  • Við höfum það ávallt að leiðarljósi að veita framúrskarandi þjónustu og uppfylla þarfir viðskiptavina okkar á viðunandi hátt